mánudagur, september 22, 2008

Í sumarbústaðnum hjá ömmu Bertu og Auðunni afa á meðan Biggilíuz var á spítalanum...
 

 

 

 
Posted by Picasa

föstudagur, maí 16, 2008

Bríet er um það bil fyndnasta barn í heimi þótt víðar væri leitað. Hún er svo frökk og ófeimin að það hálfa væri nóg - en það gerir hana einmitt svo skemmtilega.

Bíbí fór með mömmu sinni í Vesturbæjarlaugina í góða veðrinu á miðvikudaginn. Litli bróðir fór reyndar líka en svaf í vagninum sínum allan tímann. Bríet gjörsamlega ÁTTI svæðið. Hún gekk á milli sóldýrkenda og spjallaði um daginn og veginn. Sagði ókunnugum frá því í óspurðum fréttum að hún héti Erla Marzellíus (!!) og gerði sig heimakomna í hópi unglingsstúlkna. Gekk að þeim og sagði "Hæ stelpur! Hvað segið þið allt gott?" eins og hún væri mesta gelgjan á svæðinu. Hún spurði fólk ítrekað að því hvar Eiríkur vinur þeirra væri... (???) og enginn þekkti neinn Eirík (ekki Bríet heldur svo best er vitað). Þegar fólk sagðist "ekki þekkja neinn Eirík" svaraði Bríet: "Jú, víst!"

Svo talaði hún "útlensku" við James nokkurn sem hún hitti í heitapottinum. Útlenskan hennar Bríetar hljómar einhvern veginn svona: "bullugullu labbidú nanna" en hún lærði útlensku þegar "grandma" Jo og "grandpa" John voru í heimsókn hjá okkur fyrir fáeinum vikum.

Annars segjum við þeim sem ekki þekkja til að Bríetin sé alin upp meðal úlfa. Við séum bara "nýbúin að taka hana að okkur". Fólk kinkar kolli mjög skilningsríkt á svip og hugsar augoljóslega með sér: "Það skýrir ýmislegt". Hún er nefnilega með orku á við þrjá landsliðsmenn í fótbolta, hlýðir engum skipunum og rífur sig úr fötunum við hvert tækifæri. Við segjum henni sjálfri að hún sé systir Móglís. Hún er mjög ánægð með það :)

þriðjudagur, apríl 08, 2008

Í Bláfjöllum
 

 

 

 
Posted by Picasa
Bríet og Áslaug vinkona hennar í Húsdýragarðinum
 

 

 

 
Posted by Picasa
Fleiri páskamyndir
 

 

 

 
Posted by Picasa
Bríet og mamma í baði :)
 

 

 
Posted by Picasa
Mmmmmmm.... páskaegg!

 

 

 

 
Posted by Picasa

fimmtudagur, mars 13, 2008

Hér er lýsandi dæmi um hve Bríetin er mikið fiðrildi. Mamman var að reyna að mynda hana en hún GAT ekki verið kyrr! :)

 

 

 

 
Krútt með Lillahúfu

 
Posted by Picasa

mánudagur, mars 03, 2008

Bíbí alltaf jafnmikið krútt! Hún elskar tannkrem :)

 

 

 

 
Posted by Picasa

mánudagur, febrúar 25, 2008

"Ésska haddáonum!"
 
Posted by Picasa
Nývaknað krútt

 
Posted by Picasa

föstudagur, febrúar 15, 2008

Bríetin er yfir sig hrifin af litla bróður og vill vart af honum sjá. Er rosalega dugleg að "hjálpa" við að skipta á honum og "rosa stekk" eins og hún orðar það sjálf þegar hún sýnir hvað hún er dugleg að halda á honum. Sá á eftir að þurfa að láta ýmislegt yfir sig ganga, greyið, en eitt er víst að hann mun ekki fá að vera smábarn mjög lengi - Bríet er strax farin að reyna að kenna honum að labba!! Pilturinn er nú ekki nema fjögurra daga gamall :)

Annars komu viðbrögð Bríetarinnar foreldrunum verulega á óvart. Mamman og pabbinn höfðu búið sig undir frekjuköst og mömmusýki sem brytist út um leið og litli bróðir og mamma kæmu heim, en nei, það er að minnsta kosti ekki orðið enn því Bríetin er hin elskulegasta bæði við mömmu sína og litla bróður. Vonandi endist það sem lengst. Við gerum að sjálfsögðu hreinlega ráð fyrir að hún verði afbrýðissöm og þykjumst voða vel undirbúin undir hvernig taka á á því... en við sjáum til.

Það var voða fjör hér í nótt, fyrstu nótt litla bróður heima. Hann vaknaði til að drekka kl. þrjú og Bríet vaknaði um sama leyti til að fá mjólk. Þegar hún uppgötvaði, sér til mikillar gleði, að litli bróðir væri vakandi varð aldeilis uppi fótur og fit. Hún færðist öll í aukana og fylltist kæti. Vildi náttúrulega bara fá að knúsa litla bróður og halda á honum og nefnilega: að kenna honum að labba. Þegar búið var að leika dágóða stund við litla bróður uppi í rúmi, hann búinn að fá svolítið að drekka og búið að skipta tvisvar á kúkableyju fóru mamma og Bríet og fengu sér snemmbúinn morgunverð (þegar hér er komið við sögu var klukkan rúmlega fjögur). Seríos klikkar ekki á þessum tíma sólarhrings. Bríetin var svoleiðis í banastuði og söng og trallaði fyrir mömmu sína sem var farin að gefa upp alla von um að barnið myndi yfirleitt fara aftur að sofa þessa nóttina. En undur og stórmerki gerast enn. Hún samþykkti loks að leggjast í mömmu og pabba rúm, hjúfraði sig hæstánægð að pabba sínum og sofnaði vært á meðan mamma gaf litla bróður ábót. Yndislegt. Og svo svaf litli bróðir til rúmlega átta og restin til að verða níu. Þá var nú aldeilis kúrt! :) Dásamlegt líf.

Myndin er af Bríeti þegar hún sá litla bróður í fyrsta skipti á spítalanum. Krúttin!


Þið getið smellt á tengilinn hér til hliðar til að komast á heimasíðu Bigga litla bróður þar sem eru fleiri myndir af krílunum.